Almennt
Skólafélag Menntaskólans við Sund(SMS) hafi verið starfrækt frá 1989. Skólafélagið hefur aðsetur í kjallara
skólans, Gnoðarvogi 43, Reykjavík. Stjórn félagsins, Miðhópur, er skipaður Ármanni (formaður), Ritara
(varaformaður) og Gjaldkera. Undir stjórn Miðhóps starfar Miðstjórn sem markaðsfulltrúi SMS og 6 nefndir
skipa. Ýmis ráð og embætti starfa einnig undir Miðhóp.
Miðhópur:
•Ármaður er æðsta embætti SMS. Hann hefur yfirumsjón með starfsemi SMS og er talsmaður félagsins.
•Ritari er varamaður Ármanns. Ritari heldur skrá yfir starfsemi SMS, hefur umsjón með starfi tengla og
sviða. Ritari ber einnig ábyrgð á Belja.is
•Gjaldkeri er Fjármálastjóri SMS og hefur umsjón með og ber ábyrgð á bókhaldi SMS.
Miðstjórn
•Markaðsfulltrúi annast alla tekjuöflun Skólafélagsins með auglýsingasölu
•Skemmtinefnd í samráði við Miðhóp skipuleggur og heldur dansleiki, nýnemakvöld og fleiri
skemmtanatengda viðburði.
•Íþróttaráð sér um að skipuleggja og halda íþróttaviðburði innan SMS sem og fyrir hönd SMS á öðrum
vettvangi. Íþróttaráð sér meðal annars um að skipuleggja golfmót, körfuboltamót, blakmót, fótboltamót
og boxmót.
•Leiklistafélagið – Thalía sér um að skipuleggja og viðhalda leiklistarhugsjónum
meðlima SMS. Thalía stendur fyrir sýningu á einu leikriti hvert skólaár.
•Listafélag heldur uppi listrænum hugsjónum meðlima SMS. Listafélagið sér um að skipuleggja
hæfileikakeppni SMS, vígslu busa við Menntaskólann við Sund, ungfrú Belju (dragkeppni skólans) og
dimmiteringu í samráði við skemmtinefnd og miðhóp.
•Ritnefnd sér um útgáfu á blaðagerð á vegum SMS þ.e. nýnemablað sem kemur út í nýnemavikunni. ’85
blaðið sem gefið er út í vikunni sem MS-ingar hafa valið til að heiðra áttunda áratuginn og síðast en
ekki síst Steingerði þar sem er farið lauslega yfir skólaárið hverju sinni .
•Málfundafélag skipuleggur allt það sem tengist Morfís, Gettu betur og öðrum tengdum atburðum
að undanskildum viðurkenndum íþróttaviðburðum. Þess má til gamans geta að skólaárið 2009-2010
sigruðum við Morfís eftir 20 ára bið og skólaárið 2010-2011 lentum við í öðru sæti.
Embættismenn
•Grafískur hönnuður sér um hönnun og umbrot á öllum plaggötum, aðgöngumiðum á böll og
blöðum sem koma út á vegum SMS. Hann sér einnig um ýmislegt á Belja.is og ýmsu öðru á vegum
skólafélagsins.
•Útvarpsstjóri sér um og skipuleggur útvarp Mottu í ’85 vikunni.
•Skálholtsbiskupar sjá um að umgengni í Skálholti sé innan velsæmismarka, Skálholtsbiskupar
fara yfir nemendaaðstöðu að minnsta kosti einu sinni í viku.
•Kosningastjóri ber ábyrgð á kosningum SMS og er formaður kjörstjórnar.
Ráð
•Tækjaverðir hafa umsjón með tækjabúnaði SMS, Þeir sjá líka um uppsetningu fyrir hina ýmsu
viðburði SMS.
•Mjaltakonur sjá um og skipuleggja söngkeppni SMS, Bauluna í samráði við miðhóp.
•Hirðljósmyndarar sjá alfarið um ljósmyndatöku á vegum SMS.
•Videosvið festir á filmu alla atburði SMS, Videosvið gefur líka út Mysing (fréttaþáttur).
Videosvið annast allt það starf sem tengist myndbandavinnslu í nafni SMS