COMING SOON!
Elsku Mysingar, Nú fer brátt að líða að árshátíðinni og það er atburður sem ÖLL af okkur elska. Ég ætla ekkert að ljúga af ykkur því þessi dagur er sjúkur! Eða öllu heldur Árshátíðarvikan fyrir okkur sem sofa ekki myrkrana á milli spilandi Playstation. Ég satt að segja man ekki alveg sjálfur (eins og stendur) hvernig þessi vika er uppbyggð í heildsinni, en ég mun koma að því síðar. Vikan er samt algjör sprengja ;) & ballið er til 02:30 !
Þá er komið að máli málanna, Árshátíðarannál SMS hann er að frétta og verður sýndur í matnum á Árshátíðinni því hvet ég eindregið alla til þess að mæta í matinn og berja augum á þetta meistaraverk sem er nú í smíðum. Í Annálnum munum við reifa í gegnum herrans árið 2011. Sketsar, Skandalar, Hrekkir, Ballsleikir og lengi gæti ég haldið áfram! Við strákarnir í athyglissjúkafélaginu Reverner, hirðljósmyndara tvíeykið, videospólufélagið og aðrar utanbæjarskyttur.
Síðastliðnu misseri höfum verið að jafnt sem dag og nótt við smíðir á Annál SMS 2012! Enda erum við allir komnir með mætingu undir tveggjastafa tölu og horfum fram á annað ár í viðbót í MS. Öll þessi playstation-session, sketsa-tökur og eftirpartý taka sinn skerf af náminu en okkar hugsjón er sú að ykkur finnist gaman í skólanum og við fórnum okkur allir fyrir þann málsstað!
Ps. Annállinn verður sjúúkur! Engum verður hlíft og ekkert verður falið. Staðreyndin er sú mættu í matinn og þú verður viss til að hlægja af þér rassgatið.