Árshátíđ MS 2012 24.01.2012 - 20:57

Kæru MS-ingar

 

Núna fer árshátíð okkar MS-inga að ganga í garð og höfum við stelpurnar lokið við að kíkja við í alla bekki og kynnt svona helstu atriði. Árshátíðin verður s.s. haldin 16.febrúar n.k. í Gullhömrum og hefst borðhald stundvíslega klukkan 17:00. Við tókum það niður á göngu okkar á milli bekkja hverjir voru grænmetisætur eða hverjir væru með ofnæmi en ef ske kynni að einhver hafi ekki verið í skólanum þegar þetta var gert verður að láta okkur vita og senda mail á jenny@belja.is .

 

Tengill hvers bekkjar sendir mail á jenny@belja.is til þess að panta rútur. Þegar þið pantið rútunar eruð þið um leið að staðfesta komu ykkar í matinn.

 

Prufumail:

Hæjjjj Jennsla beib.

Heimilisfang: Krummaskuð 13, 105 Reykjavík

Fjöldi: 22 á ballið og það koma 22 í matinn !

Símanúmer hjá tengli: 771-2893

Símanúmer hjá varatengli: 897-8348

Atli fugl er grænmetisæta og  Pétur Finnboga er með ofnæmi fyrir skelfisk !

Hlakka ógó mikið til, bæjó spæjó !

 

Þetta væri t.d. fyrirmyndar mail ! En ef sú pæling er eitthvað að svamla um í hausnum á ykkur um það hveee margir þurfa að mæta í matinn til þess að bekkurinn eigi rétt á rútum er það allavega helmingurinn af bekknum.

 

Nánari upplýsingar um miðaverð og annað kemur síðar ! (Svo ekki vera að ónáða jennslu fínu með þessháttar spurningum í maili! Lovelovelovelooooooooove)

 

Xoxo Kryddpíur :*

Til baka