Næstkomandi laugardag verður fyrsta undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins eða hin víðfræga Eurovision söngvakeppni. Menntskælingurinn Pétur Finnbogason í 4.C er einn af þátttakendum ásamt fyrrum MS-ingunum Franz Plóder Ottóssyni og Agnari Birgi Gunnarssyni. Með þeim er rapphundurinn Kristmundur Axel Kristmundsson sem hreyfði við þjóðinni með ástríku og kraftmiklu lagi í söngkeppni framhaldsskólanna árið 2010 með laginu „Komdu tilbaka“. Þá má einnig nefna velgengni Agnars og Péturs ásamt flottu föruneyti í Rakarasviði MS í fyrra þar sem þeir lentu í 2.sæti á söngkeppninni með laginu „Latex og Leður“. Saman mynda drengirnir hópinn „Blár Ópal“ og flytja lagið „Stattu Upp“.
Höfundar lagsins er veðurguðinn Ingólfur Þórarinsson og Axel Árnason. Við hvetjum alla MS-inga að styðja við bakið á strákunum á laugardaginn kl. 20:30 og kjósa þá áfram í úrslitakvöldið sem haldið verður í febrúar þar sem komist verður að endanlegri niðurstöðu um hvert verður framlag íslensku þjóðarinnar í Eurovision.
Endilega like-ið síðuna hjá þeim. HÉR
En hér má heyra lagið! http://ruv.is/frett/login/stattu-upp
ÁFRAM BLÁR ÓPAL