Kæru nýliðar og aðrir reynsluseggir þá fer senn að líða að því sem okkur Mysingunum þykir vænst um! Því nú á mánudaginn hefst 85‘ vikan. Í þrjúhundruðsextíuogfimm nætur hef ég legið andvaka af spennu & taugahræring bíðandi eftir að mánudagurinn í 85‘ vikunni renni upp. Og leyfi ég mér að fullyrða að enginn skóli á gjörvöllu landinu hefur tærnar þar sem við höfum hælana í 85‘ vikunni, swagalegt ? Já, En vikan er með svohljóðandi sniði að á mánudaginn þá setjum við þig í gang með mikilfenglegri hæfileikakeppni þar sem öllum er gefin frjáls aðferð til að vera eins athyglissjúkur og ármaðurinn innan skynsamlegra tímamarka og varla þarf að taka það fram að vinningarnir eru ekki af síðri endanum.
Á þriðjudaginn er svo hið sívinsæla bílabíó sem mun vera staðsett á bílaplaninu hér fyrir aftan á „stóra veggnum“. Vegna almannaheilla þá ætla ég að biðja þig um að leggja ekki eins og rasshaus með háu ljósin á, aftan í rassgatinu á næsta manni. Hinsvegar er þetta gullið tækifæri til að kynnast yngri prinsessunum betur og oft hafa menn háð harðar viðureignir vegna slíkra mála.
Senn líður svo að miðvikudeginum en þá munum við slá upp í sannkallaða diskókeilu. Staðsetningin er Keiluhöllin í Öskjuhlíðinni ! Persónulega mæli ég með því hittast klukkutíma eða svo fyrir keilumótið og bera saman bækur sínar við aðra keppinauta. Á fimmtudagskvöldi á 85‘balli mun vikan síðan vera innsigluð að Gullhömrum! Enginn orð fá stemningunni og andrúmsloftinu á 85‘ balli lýst, en orðið á götunni segir að þar sjáist prinsessur með svarta efrivör!
Ps. Stillið inná Útvarp Mottu 106,1
Vilhjálmur Karl Norðdahl
BIG Shout OUT! 2 MS Prinsinn