Hér eru 1-12 af 21 myndböndum & hljóðskrám. Tilbaka
Söngvakeppnin Baulan verður haldin í Vetragarði Smáralindar þann 29. janúar næstkomandi. Allir að mæta!
Annar Mysingurinn kom skjótlega í kjölfar 85 vikunnar.
Handrit: Kristófer Páll, Halldór Gunnarsson, Egill Ólafsson og Páll Bergþórsson
Umsjón: Vídeósvið
Klipping: Árni Gestur
Myndvinnsla og hönnun á introi: Árni Gestur og Davíð Elvar
Fyrsti Mysingurinn kom í Októberfest vikunni.
Handrit og umsjón: Vídeósvið
Klipping: Árni Gestur
Myndvinnsla og hönnun á introi: Árni Gestur og Davíð Elvar
Busamyndband
Handrit og leikstjórn: Listafélag
Upptaka og klipping: Árni Gestur Sigfússon
Busahrekkurinn þetta árið er talin með þeim grófari í sögu MS.
Tveir Busastrákar, þeir Jónas og Sigurður Árni, voru plataðir í að halda að þeir væru að leika í tónlistarmyndbandi með Haffa Haff. Vonir þeirra um frægð og frama urðu uppfylltar, en ekki kannski beint á þann hátt sem þeir vildu.
Umsjón með hrekk höfðu þeir Anton Birkir Sigfússon og Árni Gestur Sigfússon
Sérstakar þakkir fá Erlingur Grétar, Karl Sigurðsson, Haraldur Sigfússon og að sjálfsögðu Haffi Haff.
Hér er hann kominn, sá sem þarf vart að kynna.
ÁRSHÁtÍÐARANNÁLLINN gjöriði svo vel!
Hér eru þau Birta Árdal og Víðir Orri að syngja sig inn í hug og hjörtu allra þeirra sem saman komnir voru í Háskólabíó þann 30. janúar.
Tónistarmyndband úr Harry Potter söngleik Menntaskólans við Sund sem frumsýndur verður í Loftkastalanum 17. febrúar nk.
Framleiðandi: Skólafélag MS
Yfirmaður framleiðslu: Birta Árdal
Myndataka: Bergsteinn Björgúlfsson
Sviðsmynd og ljós: Karl Sigurðsson
Klipping: Karl Sigurðsson - Albert Hauksson
þetta gullfallega lag var samið í tilefni '85 vikunnar 2008. Höfundur lagsins er Albert Hauksson.
Já, Mysingur er hollur og góður fyrir alla. En þessi er kannski aðeins frábrugðinn? Hann fær marga til að fá smá kjánahroll í kroppinn þegar þeir horfa á sjálfan sig í sleik við eitthvað sem reyndist síðar vera eitthvað allt annað en þeir héldu að þeir væru í sleik við...
Nokkrir busar voru fengnir til að kynna Menntaskólann við Sund í myndbandi sem senda átti út til ESC (evrópska stúdentaráðsins) og kynna skólann og landið. Myndbandið átti svo að sýna á ráðstefnu, um evrópska framhaldsskóla, í Strassburg. Fyrrverandi Ármaður MS (Arnar Ágústsson) þóttist vera á vegum Utanríkisráðuneytisins og vera umsjónarmaður þessa verkefnis.
Að sjálfsögðu var þetta allt saman eins stór lygi.
Busamyndin í ár fékk litlu busagreyin til að skjálfa á beinunum en myndin fjallaði um ævintýri Tomma á fyrsta deginum sínum í menntó. Fíflalæti í tilraunatíma hjá fjórða bekk verða til þess að hættulegasta veira í heimi fer á stjá og brátt er Tommi og vinir hans í bráðri lífshættu.
Með aðalhlutverk fara: Jón Þór, Atli, Júlía og mamma Víðis.
Handrit: Kalli
Leikstjórn/myndataka: Kalli, Albert
Förðun: Íris Barkar
Klipping: Kalli, Albert, Axel og Jón Þór
Ljós og hljóð: Víðir Orri